Þegar kröfulýsing ríkisins liggur fyrir gefur óbyggðanefnd út tilkynningu og lætur birta í Lögbirtingablaðinu og dagblaði. Þar er gerð grein fyrir kröfugerð ríkisins og skorað á þá sem telja til eignarréttinda á því svæði sem ríkið gerir kröfur til, að lýsa kröfum sínum fyrir óbyggðanefnd innan tiltekins tíma (3-6 mánaða). Samhliða kröfum sínum skulu aðilar leggja fram þær heimildir og gögn sem þeir byggja rétt sinn á. Tilkynningunni er þinglýst á þær eignir á svæðinu sem skráðar eru í þinglýsingabók hjá viðkomandi sýslumannsembætti.
Kröfulýsing fjármálaráðherra ásamt fylgigögnum eru send sýslumönnum og sveitarfélögum auk þess sem kröfulýsingar eru birtar á heimasíðu óbyggðanefndar.
Rannsóknarskylda óbyggðanefndar
Málsmeðferð óbyggðanefndar einskorðast ekki við þau gögn sem aðilar leggja fram heldur ber nefndin einnig sjálfstæða rannsóknarskyldu. Í henni felst skylda til að hafa frumkvæði að því að afla heimilda og gagna um eignar- og afnotaréttindi yfir því landsvæði sem til meðferðar er og framkvæma rannsóknir og athuganir um staðreyndir og lagaatriði sem þýðingu hafa fyrir niðurstöðu í einstökum málum. Markmiðið er að tryggja sem best að rétt niðurstaða fáist um einstök álitaefni. Til að fullnægja þessari skyldu sem best nýtur óbyggðanefnd aðstoðar Þjóðskjalasafns Íslands og fleiri aðila varðandi gagnaöflun og skjalarannsóknir.
Nánar um rannsóknarskyldu óbyggðanefndar.
Þá segir í þjóðlendulögum að komi það fram við meðferð máls að aðili, sem kann að telja til eignarréttinda, hafi ekki lýst kröfum sínum skal óbyggðanefnd hafa frumkvæði að því að kanna hvort hann falli frá tilkalli, en ella gefa honum kost á að gerast aðili máls.
Sáttaumleitan
Óbyggðanefnd leitar sátta með aðilum nema telja verði að sáttatilraun verði árangurslaus.
Málflutningur
Fyrir óbyggðanefnd fer fram málflutningur. Hann er að meginreglu skriflegur. Óbyggðanefnd getur þó ákveðið eða heimilað að fram fari munnlegur málflutningur og sönnunarfærsla og er jafnan svo við aðalmeðferðir.
Úrskurður
Máli fyrir óbyggðanefnd lýkur með úrskurði. Sá úrskurður er endanleg afgreiðsla innan stjórnsýslunnar og verður því ekki kærður til ráðherra sem æðra stjórnvalds. Sá sem vill ekki una úrskurði óbyggðanefndar getur hins vegar höfðað einkamál innan sex mánaða frá útgáfudegi þess Lögbirtingablaðs sem útdráttur úr úrskurði er birtur í.
Úrskurðir óbyggðanefndar eru birtir á eftirfarandi hátt:
fyrir þeim aðilum sem lýstu kröfum
fyrir þeim sem úrskurðað er að eigi réttindi á viðkomandi svæði
í Lögbirtingablaði (útdráttur ásamt uppdrætti)
í skýrslu óbyggðanefndar
á vefsíðum óbyggðanefndar
Að auki hefur óbyggðanefnd frumkvæði að því að þinglýsa úrskurðum sem fela í sér eignarheimildir. Þinglýsingar- og stimpilgjöld eru ekki innheimt af slíkum skjölum.