Ríkissjóður greiðir kostnað

Kostnaður vegna starfa óbyggðanefndar greiðist úr ríkissjóði. Þetta gildir jafnt um almennan rekstrarkostnað nefndarinnar sem og nauðsynlegan og eðlilegan kostnað einstaklinga og lögaðila vegna hagsmunagæslu fyrir óbyggðanefnd, að teknu tilliti til neðangreindra skilyrða.

Skilyrði fyrir greiðslu málskostnaðar

Óbyggðanefnd úrskurðar um kröfur aðila vegna kostnaðar. Við þann úrskurð geta eftirfarandi atriði skipt máli, sbr. 17. gr. þjóðlendulaga.

Aðilar geta þurft að greiða málskostnað

Óbyggðanefnd er heimilt að gera aðila að bera málskostnað sinn og gagnaðila að nokkru eða öllu leyti telji hún málatilbúnað hans gefa tilefni til slíks, svo sem ef kröfur eru hafðar uppi að tilefnislausu.

Málskostnaður fyrir dómstólum

Kjósi menn að skjóta máli sínu til dómstóla að fengnum úrskurði óbyggðanefndar og innan tilskilinna fresta gilda hins vegar almennar reglur laga um meðferða einkamála um málskostnað fyrir dómstólum.