Nánar tiltekið er um að ræða mál er varða Stór-Reykjavík; Ölfus; Grafning; Grindavík og Vatnsleysu; Kjalarnes og Kjós.
Ágreiningsaðilar í hverju máli fyrir sig eru annars vegar fjármálaráðherra fyrir hönd íslenska ríkisins, sem gert hefur kröfur um þjóðlendur á tilteknum svæðum, og hins vegar einstakir jarðeigendur og sveitarfélög, sem gert hafa kröfur um eignarland á sömu svæðum.
Uppkvaðningin mun fara fram kl.14:00, í Þjóðmenningarhúsinu, að Hverfisgötu 15, 101 Reykjavík.
Úrskurðir verða birtir á heimasíðu óbyggðanefndar að lokinni uppkvaðningu.