Óbyggðanefnd var sett á stofn með lögum um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta (oft nefnd "þjóðlendulög"), nr. 58/1998, sem tóku gildi hinn 1. júlí 1998. Breytingalög eru nr. 65/2000, 7/2005, 19/2006, 167/2007, 70/2009 og 97/2009.

Jafnframt gilda um nefndina stjórnsýslulög, nr. 37/1993, að því leyti sem þjóðlendulög kveða ekki á um annað. Í því sambandi má nefna atriði eins og leiðbeiningarskyldu stjórnvalds, andmælarétt málsaðila og upplýsingarétt.

Þá fer óbyggðanefnd með tiltekin verkefni samkvæmt bráðabirgðaákvæði sveitarstjórnarlaga, nr. 45/1998.